Skilmálar

Skilmálar vefverslunar Bone & Marrow

Velkomin í vefverslun Bone & Marrow sem er í eigu og rekstri Bone & Marrow ehf. kt. 540617-0820.  VSK-nr. 129460. Hér eftir verður notast við „við“, „okkur“ og „okkar“ þegar átt er við Bone & Marrow. 

Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega áður en þú verslar í vefverslun okkar. Með því að nota vefverslun Bone & Marrow samþykkir þú þessa skilmála.

1. PERSÓNUUPPLÝSINGAR
Við virðum friðhelgi þína og meðhöndlum persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/200 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Þegar verslað er í vefverslun þarf að gefa upp nafn, heimilisfang og netfang. Þessar upplýsingar eru eingöngu nýttar til að ganga frá pöntun, en kaupsaga er vistuð áfram á öruggu svæði sem er læst. Athugið að kortanúmer eru aldrei geymd á vefsvæðum okkar og einungis er hægt að sjá tegund greiðslu, ef fletta þarf upp pöntun. Við deilum aldrei persónuupplýsingum með þriðja aðila.

2. VÖRUÁBYRGÐ

Vöru er hægt að skila en tilkynning um slíkt þarf að berast okkur innan sólarhrings frá móttöku pöntunar. Vöru er einungis hægt að skila í upprunalegum umbúðum og í söluhæfu ástandi.

Senda skal tölvupóst á sales@boneandmarrow.com með pöntunarnúmeri og ástæðu skila.

3. NÁKVÆMNI UPPLÝSINGA
Við kappkostum að hafa réttar lýsingar og vörumyndir í vefverslun okkar. Upp geta komið tilvik þar sem um minniháttar litamun eða umbúðamun getur verið að ræða. Að öðru leyti eru upplýsingar birtar með fyrirvara um innsláttarvillur eða minniháttar uppfærslutafir.

4. VERÐ
Uppgefið verð í vefverslun okkar er í íslenskum krónum. Athugið að verðbreytingar eru ekki auglýstar fyrirfram. Virðisaukaskattur er innifalinn í verði. Afhendingarleið er valin í lok pöntunar sem getur leitt til aukins sendingarkostnaðs.

5. FERILL PANTANA
Pantanir eru afgreiddar til sendingaraðila að jafnaði þrisvar í viku.
Þegar þú hefur lokið við að panta í vefverslun færðu tölvupóst með pöntunarnúmeri og kvittun fyrir vörukaupum. Kvittun jafngildir ekki afgreiðslu, við áskiljum okkur rétt til að bakfæra pöntun ef grunur um einhvers konar misferli vaknar. Þegar vara er farin í af stað berst þér staðfesting þess eðlis. Ekki er boðið upp á rekjanlegar sendingar. 

6. GREIÐSLULEIÐIR
Eftirfarandi kort er hægt að nota í vefverslun Bone & Marrow:

Visa
Visa debetkort
Mastercard
Maestro
JCB

7. GREIÐSLUVANDAMÁL
Ef vandamál vegna greiðslu koma upp eftirá vegna greiðslu (t.d. vákort) áskiljum við okkur rétt til að hafna greiðslunni og hætta við pöntunina.

8. ÖRYGGI VEFSVÆÐIS
Við setjum öryggi viðskiptavina okkar á oddinn. Við notum bestu tækni sem völ er á til að tryggja að allar greiðslur séu öruggar. Undir lok pöntunarinnar flytur síðan þig yfir á https-svæði þar sem þú setur inn kortaupplýsingar.
Hins vegar geta gamlir vafrar verið öryggisógn og því mælum við alltaf með að notendur séu með nýjustu útgáfu af þeim vafra sem þeir kjósa að nota.
Við vistum engar kortaupplýsingar á vefþjónum okkar eða vefsvæðum.

9. SENDINGAR
Við gerum okkar besta til að tryggja þér bestu og skjótvirkustu sendingarleiðir sem völ er á, en sendingartíminn veltur þó alltaf á staðsetningu viðtakanda. Við sendum með Dropp á dreifingarsvæði þeirra  á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni en utan þess þá fara sendingar í gegnum Flytjanda. Afhendingin sendinga getur tafist þegar mikið álag er á dreifingaraðilum, eins og i kringum hátíðir.

10. BREYTINGAR Á PÖNTUN
Pantanir eru afgreiddar á virkum dögum kl. 10-15. Við mælum með því að þú yfirfarir pöntunina vel áður en þú lýkur við hana. Ef þú þarft að breyta pöntun eftirá getur hlotist af því viðbótarkostnaður. Vinsamlegast vísið í pöntunarnúmer ef breyta þarf pöntun og sendið allar fyrirspurnir á sales@boneandmarrow.com.

12. HÖFUNDARÉTTUR
Allt efni í vefverslun, þ.m.t. vörumerki, myndir, texti, ljósmyndir, grafík, hljóð og mynd, er í eigu Bone & Marrow ehf. og er höfundarvarið.
Ekki er heimilt að nota, afrita eða selja efni af síðunni án skriflegs samþykkis okkar.

13. ÁBYRGÐ OG SKULDBINDING
Vefverslun þessi er opin öllum en við erum ekki ábyrg fyrir rangri notkun síðunnar né erum við skuldbundin til að eiga alltaf allar vörutegundir til á lager. Ef skila á vöru skal kaupandi koma athugasemdum til skila til starfsmanna Bone & Marrow innan sólarhrings frá móttöku vöru er einungis hægt að skipta eða skila gegn framvísun kassakvittunar og pöntunarnúmers.
Vöru er einungis hægt að skila í upprunalegum umbúðum og í söluhæfu ástandi
Athugið að taka þarf fram hvað það var sem að óánægja var með og pöntunarnúmer skal sent á netfangið sales@boneandmarrow.com.