Beinaseyði

Á beinaseyði að vera svona hlaupkennt?

Já, beinaseyði "gelar" eða verður hlaupkennt þegar það er kalt. Það er eðlilegt og merki um að vel sé af kollageni og hálf-vatnsrofnu kollageni (gelatíni) í vörunni. Kollagen prótínið er þannig gert að við suðu þá leysist það upp og er fljótandi við stofuhita en þegar það er kalt þá flækir það sig saman eins og spagettílengjur, sem sagt verður að hlaupi. Til þess að fá það í fljótandi form er hægt að geyma það á borðinu í smá stund eftir að maður tekur það út. 

Hvað er beinaseyði?

​Beinaseyði er ein elsta heita máltíð mannsins. Þekkingin um þennan heilsudrykk hefur fylgt manninum í gegnum aldirnar og er löng hefð fyrir neyslu á beinaseyði víða um heim. Á síðustu árum hefur eftirspurn eftir hágæða beinaseyði aukist, sérstaklega á Vesturlöndum. Það er einkum heilnæmi beinaseyðisins sem gerir það eftirsóknarvert.

Úr hverju er beinaseyði?

Beinaseyði er soðið úr íslensku vatni, íslenskum dýrabeinum, grænmeti og kryddi. Þegar kemur að því að velja bein fyrir suðu er þess gætt að velja hágæða bein og að samsetning þeirra sé þannig að mikið sé um liði, brjósk og merg. Við suðu losnar kollagenprótein (1, 2 og 3) úr beinunum, fita úr mergnum og ýmis önnur efni úr brjóski og liðum, til að mynda glycosaminoglycans (GAGs) og amínósýrurnar glýsin, prólín og glútamín, og ýmis önnur snefilefni. Til þess að tryggja að næringarefni losni úr beinunum er beinaseyði, ásamt grænmeti og kryddi soðið í 20+ klst og verkað á ákveðinn hátt.

Hvernig nota ég beinaseyði?

Beinaseyðið er tilbúið til neyslu beint úr krukkunni. Það er hægt að drekka það heitt í staðinn fyrir kaffi eða te, það er hentugt sem millimál og til að nota eftir erfiðar íþróttaæfingar. Það er frábært sem súpu- eða sósugrunnur, til að gufusteikja kjöt eða grænmeti upp úr eða bæta í hrísgrjón. Í raun hentar beinaseyði í uppáhaldsrétti hvers og eins. Sumir fá sér einn bolla á morgnana og aðrir fá sér einn bolla fyrir svefninn. Endilega skoðaðu uppskriftasíðuna okkar fyrir hugmyndir.

Hvað endist beinaseyði lengi?

Óopnað í kæli geymist beinaseyði í allt að 12 mánuði frá framleiðsludegi. Eftir að beinaseyði hefur verið opnað geymist það í ca. 5 - 7 daga í kæli.

Má drekka beinaseyði kalt?

Já svo sannarlega. Beinaseyðið er soðin afurð og því er fullkomlega óhætt að drekka það beint úr krukkunni kalt ef maður vill. Sumir nota það beint út í boozt þannig.

Hver er munurinn á soði, seyði, krafti og beinaseyði?

Þeir sem hafa reynslu af eldamennsku vita að grunnur að góðri sósu eða súpu er að nota soð eða seyði. Þó svo að flestir noti þessi orð til skiptist er merkingarmunur á þeim. Við hjá Bone & Marrow, sem og aðrir erlendir framleiðendur beinaseyða, gerum greinarmun á soði, seyði, krafti og síðan beinaseyði. Munurinn felst í framleiðsluferlinu og síðan hvaða hráefni eru notuð.

Hvað er soð (e. stock)?
Soð er búið til með því að sjóða bein, liði og bandvefi í 3-4 tíma. Með því að láta beinin malla í lengri tíma þá byrja næringarefni, eins og kollagen, að losna úr beinunum. Gelatín myndast úr kollageninu og gefur soðinu hlaupkennda áferð þegar það er kælt. Í sumt soð er bætt við kryddi, kryddjurtum og grænmeti og annað er bara haft hreint.

Hvað er seyði (e. broth)?
Seyði er fremur ljós vökvi sem er soðinn úr kjötafgöngum, til að mynda kjúklingi eða lambi, nú eða ýmis konar grænmetisafgöngum. Seyði er léttara miðað við soð og er eldað frá 45 mín og upp í 2 klst. Líkt og með soðið er hægt að bragðbæta seyðið með kryddjurtum og grænmeti. Í einstaka tilfellum er beinum bætt út í seyði. Þar sem seyðið hefur mun styttri suðutíma losnar kollagen ekki af neinu ráði úr beinunum og því hleypur seyði ekki. Það er því að sama skapi minna af þeim góðum næringarefnum sem hægt er að finna í beinunum.
Hvað er kjötkraftur/grænmetiskraftur (e. bouillon)?
Kjöt- eða grænmetiskraftur er soð eða seyði sem búið er að sjóða niður að stórum hluta og er ýmist selt sem fljótandi þykkni eða í duftformi. Gæði kraftsins er æði mismunandi og oft eru notuð kynstrin öll af aukaefnum til þess að ná fram rétta bragðinu.

Hvað er beinaseyði (e. Bone broth)?
Beinaseyði er eins konar blanda af soði og seyði. Beinaseyði er líkt soði af því leyti að það búið til með því að sjóða bein, liði og annað í lengri tíma og hefur þykka, hlaupkennda áferð. Það sem greinir á milli soðs og beinaseyðis er að beinaseyðið er soðið mun mun lengur - allt að 48 tímum til þess að ná sem mestum næringarefnum úr beinum, brjóski, liðum og mergni en styrkur ýmissa næringarnefna eykst með lengd suðutíma.

Þar sem að orðin seyði og soð hafa verið notuð til skiptist til að lýsa sama hlutnum þá þróuðust málin þannig að orðið beinasoð (e. Bone stock) varð að beinaseyði (e. Bone broth) og það nafn hefur fest. Við í Bone & Marrow notum því heitið Beinaseyði til þess að lýsa afurðinni sem við erum að framleiða.